;

UM OKKUR

COURSES

Um okkur

Fótboltaland er fyrsti fótboltaskemmtigarður Evrópu og þótt víðar væri leitað. Þetta er einn glæsilegasti skemmtigarður landsins með mikinn fjölda stafrænna tækja og þrauta sem tengjast fótbolta.

Í Fótboltalandi er að finna afþreyingu fyrir börn og fullorðna þar sem vinsælasta íþrótt heims er í forgrunni. Með stofnun Fótboltalands er ekki aðeins komið til móts við þarfir knattspyrnuáhugamanna heldur einnig að mæta vaxandi eftirspurn eftir fjörugri skemmtun með hreyfingu sem hentar öllum aldurshópum.

Í Fótboltalandi er að finna um tuttugu mismunandi þrautabrautir og er þeim skipt í keppnisbrautir og skemmtibrautir. Á keppnisbrautunum reyna gestir að ná sem flestum stigum og sigra þannig vini eða fjölskyldu á viðkomandi brautum. Í skemmti brautunum snýst allt um að skemmta sér þó alltaf sé hægt að setja upp keppni í þeim líka ef gestir kjósa það. Í skemmtibrautum geta fleiri en einn spilað á sama tíma.

Helstu tækninýjungar eru notaðar í Fótboltalandi, þar á meðal RFID armbönd sem halda utan um skor keppenda og stafrænn fótboltabúnaður frá Elite Skills Arena sem notaður er á æfingasvæðum stærstu knattspyrnufélaga heims.

dummy
dummy